„Ég hlakka til að mæta aftur á mánudaginn“
- Kvennastyrksteymið

- Jul 31
- 1 min read
Það er svolítið sérstakt þegar maður hugsar um það...
Mánudagar fá oft ekki mikið hrós.

Við tölum um að helgin hafi liðið of hratt og að ný vika sé að byrja.
En veistu hvað okkur finnst skemmtilegast að heyra?
„Ég hlakka til að mæta aftur á mánudaginn.“
Þegar einhver segir þetta vitum við að það snýst um miklu meira en æfinguna sjálfa.
Það snýst um að líða vel.
Um að hitta fólkið sitt.
Um að gera eitthvað gott fyrir sjálfa sig.
Það er nákvæmlega svona sem við viljum að Kvennastyrkur sé.
Staður sem þú hlakkar til að koma á.
Eigðu yndislega helgi og gerðu eitthvað sem lætur þér líða vel.
Við hlökkum til að sjá ykkur aftur á mánudaginn. 💜
– Halldóra og Viðar




Comments