
Vantar þig aðstoð?
Við höfum áralanga reynslu í markaðsmálum fyrir minni og stærri fyrirtæki og bjóðum nú upp á ráðgjöf fyrir þá sem hafa ef til vill ekki ráð og efni á því að leita til stærri fyrirtækja. Kannski ertu líka bara að taka fyrstu skrefin í að koma þér á framfæri og veist ekki hvar þú átt að byrja.
Við tökum að okkur heimasíðugerð fyrir einfaldar heimasíður og umsjón, textagerð ýmiskonar, hvort sem er fyrir samfélagsmiðla, heimasíður eða annað markaðsefni.
Ef þig vantar aðstoð í að sjá um samfélagsmiðla er hægt að setja upp mánaðarplan fyrir þig sem þú sjálf/ur fylgir eftir.
Við bjóðum ráðgjöf varðandi efnisval á heimasíðum, uppsetningar og fleira þeim tengdum.
Við veitum þér persónulega þjónustu og förum eftir því hvað þú vilt ná fram í markaðsstarfi.
Hafðu samband og við finnum eitthvað sniðugt út í sameiningu.
Ráðgjafinn
Halldóra Anna Hagalín, annar eigandi Kvennastyrks og framkvæmdarstjóri er reynslubolti á sviði markaðsmála og býður nú fram aðstoð sína til einstaklinga og smærri fyrirtækja. Reynsla hennar nær jafnt til markaðs-, vef-, rit- og samfélagsmiðlastjórnar ásamt textagerð og rekstrartengdra mála. Auka víðtækrar reynslu hefur Halldóra lokið MBA námi frá Háskóla Íslands.
„Ef þú vilt koma þér á framfæri skiptir máli að gera það markvisst, skipulagt og að hafa plan til að fylgja. Það skiptir máli að gera þetta vel. Ég smíða einfaldar heimasíður, ráðlegg með þær stærri, sé um samfélagsmiðla og skrifa texta. Það er ýmislegt hægt að gera og ég er viss um að við getum gert eitthvað skemmtilegt saman en þú þarft að taka fyrsta skrefið og hafa samband.“
Sjá nánar um Halldóru á Linkedin: https://www.linkedin.com/in/hahagalin/

Hafðu samband
Þú getur sent okkur fyrirspurn á spjallinu hér, hringt í okkur í síma 537 0606 eða sent tölvupóst á halldora@kvennastyrkur.is