Fljótandi tímar
Frelsi til að æfa þegar það hentar þér 💜
Vikan er ekki alltaf eins – og æfingarnar þurfa ekki að vera það heldur.
Með Fljótandi tímum velur þú sjálf hvaða opnu tíma þú mætir í og hvenær.
Þú getur byrjað daginn snemma í hóptíma, mætt seinna um daginn eða tekið þína eigin æfingu í lyftinga- og tækjasalnum.
Þú velur það sem hentar þér og þinni viku.
Með Fljótandi færðu allt þetta:
💜 Aðgang að öllum opnum hóptímum
💜 Aðgang að jóga
💜 Aðgang að lyftinga- og tækjasal
💜 Fjölbreyttar æfingar – styrk, þol, hreyfigetu og allt þar á milli
💜 Frelsi til að velja tíma eftir því hvernig vikan þín lítur út
💜 Leiðsögn frá þjálfurum í hóptímum og æfingar aðlagaðar eftir þörfum
💜 Aðgang að stöðinni frá morgni til kvölds
Hóptímar + jóga + ræktin = allt í einni áskrift.

Þú þarft ekki að æfa eins í hverri viku
Kannski hentar þér að mæta snemma fyrir vinnu á mánudegi, í hóptíma eftir vinnu á miðvikudegi og taka svo þína eigin æfingu í salnum um helgina.
Næsta vika getur litið allt öðruvísi út.
Það er einmitt hugmyndin með Fljótandi tímum.
Þú þarft ekki að eiga fast pláss í ákveðnum tíma – þú bókar þig einfaldlega í þá opnu tíma sem henta hverju sinni.
Hópatímarnir
Hjá Kvennastyrk æfa konur á ólíkum aldri, með ólíkan bakgrunn og á ólíkum getustigum.
Þjálfarinn stýrir tímanum, leiðbeinir og hjálpar þér að finna útfærslu sem hentar þér. Þú þarft því ekki að kunna æfingarnar fyrirfram eða velta því fyrir þér hvort þú getir gert allt nákvæmlega eins og næsta kona.
Þú mætir – við sjáum um rest.


Svo er það smá lúxus✨
Við viljum að það sé einfalt og þægilegt að mæta á æfingu – líka þegar þú ert á leið í vinnuna, beint úr vinnunni eða með nóg annað á dagskránni.
Þess vegna finnur þú ýmislegt hjá okkur sem gerir lífið aðeins auðveldara.
Hjá okkur eru meðal annars:
💜 Handklæði til afnota
💜 Tíðarvörur
💜 Eyrnapinnar
💜 Hárþurrkur
💜 Sléttujárn
Litlu hlutirnir skipta líka máli.
Þú þarft í raun bara að muna eftir æfingafötunum og skónum.
Spurt & svarað
Þarf ég að eiga fastan tíma?
Nei. Með Fljótandi bókar þú þig í þá opnu tíma sem henta þér hverju sinni.
Get ég mætt í hvaða opna hóptíma sem er?
Já, þú getur bókað þig í alla opna hóptíma þar sem laus pláss eru.
Fylgir jóga með Fljótandi?
Já 💜 Jóga er innifalið í Fljótandi og þú bókar þig einfaldlega í tíma eins og aðra opna hóptíma.
Má ég líka æfa sjálf?
Já. Aðgangur að lyftinga- og tækjasal fylgir Fljótandi.
Þarf ég að vera vön að æfa í hóptímum?
Nei. Þjálfararnir leiðbeina og æfingar eru aðlagaðar að þinni getu eftir þörfum.
Hvað ef ég get ekki gert einhverja æfingu?
Þá finnum við aðra útfærslu sem hentar þér.
Get ég komið fyrst og prófað?
Já 💜 Þú getur bókað frían prufutíma og prófað áður en þú ákveður þig.
Er binditími?
Fljótandi er ótímabundin áskrift með tveggja vikna uppsagnarfresti. Þú getur líka keypt stakan mánuð.


