top of page
20250304_120824.jpg

Styrkur 60+

Sterkari í daglegu lífi 💜

Styrkur 60+ er fyrir þig sem vilt viðhalda og byggja upp styrk, bæta jafnvægi og hreyfigetu og einfaldlega líða betur í líkamanum.

Æfingarnar eru fjölbreyttar og unnið er með allan líkamann. Þú æfir alltaf eftir þinni getu og á þínum hraða og hægt er að aðlaga æfingarnar að hverjum og einum.

 

Hvort sem þú hefur æft lengi, ert að byrja aftur eftir hlé eða ert að taka fyrstu skrefin í styrktarþjálfun – þá tökum við vel á móti þér 💜

Veldu það fyrirkomulag sem hentar þér

Við vitum að það hentar ekki öllum að æfa á sama tíma. Þess vegna geturðu valið um þrjár leiðir:

1. Fljótandi tímar

Viltu hafa frelsi?

Með Fljótandi 60+ festir þú þig ekki við ákveðna daga heldur skráir þig jafnóðum í þá 60+ tíma sem henta þér hverju sinni.

2. Morgunhópur

Þriðjudagar + fimmtudagar

kl. 9.40

  • Þú átt fast pláss í þessum tveimur tímum á viku og þarft ekki að bóka þig.

  • Auk þess getur þú skráð þig í aðra opna hópatíma og jóga þegar það hentar þér.

3. Eftir hádegi

Mánudagar + fimmtudagar

kl. 13.10

  • Þú átt fast pláss í þessum tveimur tímum á viku og þarft ekki að bóka þig.

  • Auk þess getur þú skráð þig í aðra opna hópatíma og jóga þegar það hentar þér.

Spurt og svarað

Hvernig eru tímarnir?

Í Styrk 60+ leggjum við meðal annars áherslu á:

💪 styrk fyrir daglegt líf
⚖️ jafnvægi og stöðugleika
💜 hreyfigetu og liðleika
🦴 sterkan líkama til framtíðar
😊 góða upplifun af hreyfingu

 

Æfingarnar eru fjölbreyttar og hver og einn vinnur út frá sinni getu. Markmiðið er ekki að allir geri nákvæmlega það sama – heldur að þú fáir góða æfingu sem hentar þér.

Má ég mæta í aðra tíma?

Já 💜

Þótt þú veljir fasta 60+ tíma þarftu ekki að halda þig eingöngu við þá.

 

Þú getur líka nýtt aðra tíma sem eru innifaldir í áskriftinni þinni, sem eru allir opnir hópatímar og jóga.

Þannig færðu bæði öryggið sem fylgir því að eiga þína föstu tíma og sveigjanleikann þegar lífið kallar á breytingar.

Langar þig að prófa fyrst?

Þú þarft ekki að ákveða allt strax.

Komdu í frían prufutíma í Styrk 60+, hittu okkur, prófaðu æfingu og sjáðu hvernig þér líður hjá okkur.

Við tökum vel á móti þér

Það skiptir okkur máli að þér líði vel þegar þú kemur til okkar – hvort sem þetta er fyrsta æfingin þín í langan tíma eða líkamsrækt hefur alltaf verið hluti af þínu lífi.

 

Hér er pláss fyrir þig 💜

Umsagnir úr Styrk 60+

„Tímarnir eru skemmtilegir. Finnst öryggi að vera í svona litlum hóp, betur fylgst með hverjum og einum.“

bottom of page