top of page
barn í tíma

Mömmustyrkur

Sterkari mamma – krílið fær

að koma með 💜

MömmuStyrkur er fyrir þig sem ert að byggja þig upp eftir meðgöngu og fæðingu og vilt koma hreyfingu aftur inn í daginn – án þess að þurfa að finna pössun fyrir krílið.

 

Barnið er hjartanlega velkomið með í tímann 💜

 

Við vinnum með allan líkamann með áherslu á styrk, góða líkamsbeitingu og að ná aftur góðri tengingu við kvið, mjaðmir og grindarbotn.

Æfingarnar eru alltaf aðlagaðar að þér, þinni getu og því hvernig líkaminn er í dag.

20260318_101706.jpg

Krílið kemur bara með 👶

Við vitum að dagarnir með lítið barn fara ekki alltaf alveg eftir áætlun.

Þess vegna er MömmuStyrkur settur upp með það í huga að börnin séu með okkur.

Ef krílið sefur í vagninum er góð aðstaða fyrir vagna fyrir utan. Ef það er vakandi kemur það bara með inn í salinn.

 

Þú mátt sinna barninu þegar þess þarf – gefa, hugga, skipta eða taka smá pásu frá æfingunni.

 

Þú ert ekki að trufla tímann. Þetta er MömmuStyrkur. 💜

Með MömmuStyrk færðu:

💜 Fasta tíma 2–3x í viku
Þú velur þann hóp og tímasetningu sem hentar þér best.

💜 MömmuStyrkstíma sem eru sérstaklega hugsaðir fyrir þig
Við vinnum með allan líkamann með áherslu á styrk, góða líkamsbeitingu, djúpvöðva og grindarbotn.

 

💜 Æfingar sem eru aðlagaðar að þér
Þú vinnur út frá þinni getu og hvernig líkaminn er þann daginn. Þjálfarinn leiðbeinir og finnur aðrar útfærslur þegar þess þarf.

 

💜 Sveigjanleika milli MömmuStyrkstíma
Ef eitthvað kemur upp eða ef þig langar að mæta oftar en föstu tímarnir þínar eru geturðu flakkað á milli MömmuStyrkstíma þegar pláss er.

 

💜 Aðgang að opnum hóptímum Kvennastyrks og ræktinni
Þú ert því ekki eingöngu bundin við MömmuStyrkstímana þína.

 

💜 Krílið með í tímana
Börnin eru hjartanlega velkomin með. Við erum með leikmottur/grindur og matarstóla og góða aðstöðu fyrir vagna.

 

💜 Aðstöðu sem gerir þetta aðeins auðveldara
Handklæði eru til afnota og í klefanum er ýmislegt smálegt sem gott er að hafa við höndina.

 

💜 Möguleika á að byrja hvenær sem er
MömmuStyrkur er ekki námskeið með ákveðnum upphafsdegi – þú getur bæst í hópinn þegar það hentar þér.

Þú færð því bæði festu og sveigjanleika 💜
Þú átt þína föstu tíma í vikunni en getur mætt oftar og skipt um tíma þegar lífið með litlu kríli fer ekki alveg eftir planinu.

Veldu hópinn sem hentar þér

Það er hægt að byrja hvenær sem er í MömmuStyrk

– þú þarft því ekki að bíða eftir að nýtt námskeið hefjist.

3x í viku - kl. 9.30

Mánudagar + miðvikudagar + föstudagar


Kl. 9.30–10.30

19.990 kr./mán

3x í viku - kl. 10.40

Mánudagar + miðvikudagar + föstudagar


Kl. 10.40–11.40

19.990 kr./mán

2x í viku - kl. 10.40

Þriðjudagar + fimmtudagar


Kl. 10.40-11.40

18.990 kr./mán

Hvernig eru tímarnir?

MömmuStyrkur er 60 mínútna tími þar sem við vinnum bæði með styrk og þol. Við leggjum áherslu á:

💜 styrk fyrir allan líkamann
💜 góða líkamsbeitingu
💜 djúpvöðva kviðs og grindarbotn
💜 að byggja líkamann upp eftir meðgöngu og fæðingu
💜 æfingar sem hægt er að aðlaga upp eða niður
💜 að þú vinnir á þínum hraða

Markmiðið er ekki að allar geri nákvæmlega það sama.

 

Markmiðið er að þú fáir góða æfingu sem hentar líkamanum.

Algengar spurningar

Má barnið mitt koma með?
Já 💜 MömmuStyrkur er sérstaklega ætlaður konum í fæðingarorlofi og krílin eru velkomin með.

 

Hvað ef barnið sefur?
Þá er góð aðstaða fyrir vagna fyrir utan.

 

Hvað ef ég þarf að sinna barninu í miðjum tíma?
Þá gerirðu það. Það er hluti af lífinu í MömmuStyrk.

 

Þarf ég að hafa æft áður?
Nei. Æfingarnar eru aðlagaðar og þú vinnur út frá þinni getu.

 

Þarf ég að byrja á ákveðnum degi?
Nei. Þú getur byrjað hvenær sem er.

 

Er ég föst í mínum hópi?

Þú velur þér hóp en getur flakkað á milli MömmuStyrkstíma þegar pláss er. Þú getur líka mætt í alla opna tíma og ræktina.

20250924_112545.jpg

Tilbúin að prófa? 💜

Þú þarft ekki að vita fyrirfram hvort MömmuStyrkur sé rétti staðurinn fyrir þig.

Komdu bara og prófaðu.

Við tökum vel á móti þér – og krílinu

bottom of page