top of page
Search

Af hverju erum við eiginlega að þessu?

Stundum þegar við tölum um líkamsrækt verður fókusinn svo fljótt á því hvernig við lítum út.

Kílóin. Fötin. Vigtin. Speglarnir.

 

En þegar við hugsum um ástæðuna fyrir því að við hreyfum okkur og lyftum lóðum, þá er hún svo miklu stærri en það.

 

Við viljum vera sterk.

  • Ekki bara sterk til að geta lyft þyngra lóði í ræktinni – heldur sterk í lífinu.

  • Við viljum geta borið innkaupapokana inn úr bílnum.

  • Lyft barninu eða barnabarninu upp.

  • Gengið upp stigann án þess að hugsa um það.

  • Ferðast, labbað, leikið okkur og gert það sem okkur langar til að gera.

     

Og við viljum geta haldið áfram að gera þessa hluti eins lengi og mögulegt er.

 

Þess vegna skiptir styrktarþjálfun máli.

 

Við erum ekki bara að æfa fyrir daginn í dag. Við erum líka að fjárfesta í líkamanum sem við ætlum að búa í næstu áratugina.

 

Og það þarf ekki alltaf að vera flókið.

  • Við þurfum ekki að lyfta þyngst.

  • Við þurfum ekki að vera fljótust.

Og við þurfum alls ekki að gera allt fullkomlega.

 

En líkaminn þarf á því að halda að við notum hann.

  • Að við göngum.

  • Lyftum.

  • Togum.

  • Ýtum.

  • Beygjum okkur.

  • Réttum úr okkur.

  • Og höldum áfram að hreyfa okkur.


Það er einmitt ein af ástæðunum fyrir því að okkur finnst svo gaman að sjá konur verða sterkari hjá okkur.

 

Stundum sjáum við breytinguna í lóðunum sem þær lyfta.

 

En stundum heyrum við hana bara í einni setningu:

 

„Ég finn hvað þetta er orðið miklu auðveldara.“

 

Og fyrir okkur er það eiginlega það sem þetta snýst um.

 

Við erum ekki bara að æfa fyrir ræktina. Við erum að æfa fyrir lífið 💜

 
 
 

Comments


bottom of page