Hvað ef markmiðið er ekki að verða minni?
- Kvennastyrksteymið

- 22 hours ago
- 2 min read
Það er svolítið merkilegt hvað hreyfing hefur lengi verið tengd við það að breyta því hvernig við lítum út.

Léttast. Minnka um sentimetra. Komast í ákveðna stærð. Brenna kaloríum.
Og það er auðvitað ekkert að því að vilja breyta líkamanum sínum eða hafa þannig markmið.
En það er svo ótrúlega margt annað sem gerist þegar við styrkjum líkamann okkar.
Hlutir sem sjást kannski ekki endilega á vigtinni eða í speglinum.
Þú tekur allt í einu eftir því að innkaupapokarnir eru ekki jafn þungir.
Þú gengur upp stigann og ert ekki að hugsa um stigann.
Þú lyftir barninu – eða barnabarninu – upp af gólfinu án þess að þurfa að undirbúa þig sérstaklega fyrir það.
Þú ferð í ferðalag og getur labbað allan daginn.
Þú stendur upp af gólfinu án þess að hugsa um hvernig þú ætlar eiginlega að komast upp.
Þú ert sterkari í vinnunni. Öruggari á fótunum. Með meira jafnvægi.
Og kannski bara aðeins öruggari í eigin líkama.
Þetta eru hlutirnir sem við tölum stundum ekki jafn mikið um.
Kannski vegna þess að það er auðveldara að mæla kíló og sentimetra en að mæla það að eitthvað sem var erfitt fyrir sex mánuðum sé allt í einu orðið auðvelt.
En þetta er árangur.
Og eftir því sem árin líða verður hann jafnvel enn verðmætari.
Við æfum nefnilega ekki bara fyrir líkamann sem við erum með í dag.
Við erum líka að fjárfesta í konunni sem við verðum eftir 10, 20 og 30 ár.
Konunni sem við viljum að geti áfram ferðast, farið í göngutúra, leikið við barnabörnin, borið eigin innkaupapoka, staðið upp af gólfinu og gert allt þetta hversdagslega sem við tökum svo auðveldlega sem sjálfsögðum hlut á meðan við getum það.
Og þá verður kannski spurningin aðeins öðruvísi.
Ekki bara:
„Hvernig vil ég líta út?“
Heldur líka:
„Hvað vil ég geta gert?“
Og það er eiginlega alveg meiriháttar markmið að æfa fyrir 💜




Comments