Fögnum litlu sigrunum 💜

Það er svo auðvelt að ætla sér of mikið þegar maður ákveður að koma sér af stað í hreyfingu.
Við byrjum fullar af eldmóði, ákveðum að nú ætlum við sko að vera duglegar og setjum okkur markmið um að æfa fjórum eða fimm sinnum í viku. Og kannski gengur það alveg ljómandi vel fyrstu vikuna.
En svo tekur hversdagsleikinn við. Vinnan, fjölskyldan, verkefnin og allt hitt sem fyllir dagana. Allt í einu náum við ekki að mæta eins oft og við ætluðum okkur og þá læðist að sú tilfinning að við séum ekki að standa okkur nógu vel.
En af hverju ættum við að horfa á það þannig?
Við viljum miklu frekar hvetja þig til að setja þér hófleg og raunhæf markmið sem þú getur staðið við.
Ef þú ert að byrja að koma hreyfingu inn í rútínuna þína getur til dæmis verið mjög gott að ákveða að mæta tvisvar í viku. Það er markmiðið þitt.
Og ef þú vaknar einn daginn með auka orku, hefur tíma og langar að mæta í þriðja skiptið – þá er það bara frábær bónus! 💪
En ef þú mætir tvisvar, nákvæmlega eins og þú ætlaðir þér, þá hefurðu náð markmiðinu þínu. Það er ekkert „bara“ við það.
Við eigum ekki að eyða orkunni í að hugsa um tímann sem við náðum ekki að mæta í. Við eigum að fagna tímunum sem við mættum í!
Því það eru einmitt þessir litlu sigrar sem byggja upp sjálfstraustið, ánægjuna og venjurnar sem endast.
Og þegar tvær æfingar í viku eru orðnar eðlilegur hluti af lífinu geturðu alltaf endurskoðað markmiðið ef þig langar og aðstæður leyfa.
En það er engin ástæða til að flýta sér.
Setjum okkur markmið sem við getum náð. Fögnum þegar við náum þeim. Og leyfum litlu sigrunum að verða að einhverju stóru með tímanum 💜





Comments