Það þarf ekki alltaf að byrja upp á nýtt!
- Kvennastyrksteymið

- 17 hours ago
- 1 min read
Það er merkilegt hvað við erum fljót að skipta lífinu niður í tímabil.
„Eftir helgi...“

„Eftir sumarfrí...“
„Þegar skólinn byrjar...“
„Næsta mánudag...“
Við bíðum of oft eftir rétta augnablikinu til að byrja.
En ef maður hugsar aðeins út í það þá er lífið ekki þannig.
Við vöknum ekki allt í einu á mánudegi með meiri orku eða meiri viljastyrk bara af því dagatalið segir að ný vika sé byrjuð.
Það sem skiptir máli eru litlu skrefin sem við tökum aftur og aftur.
Kannski verður fyrsta skrefið eftir verslunarmannahelgina að mæta í einn tíma.
Kannski verður það að fara í göngutúr.
Kannski bara að ákveða að gefa sér klukkutíma fyrir sjálfa sig.
Það þarf ekki að vera meira en það.
Við trúum því nefnilega að heilsa byggist ekki á fullkomnun.
Hún byggist á því að finna jafnvægi.
Að njóta grillveislunnar.
Hlæja með fjölskyldunni.
Borða ísinn.
Og þegar hversdagurinn bankar aftur upp á eftir helgina verður Kvennastyrkur hér.
Ekki til að minna þig á það sem þú hefðir átt að gera.
Heldur til að taka á móti þér, nákvæmlega eins og þú ert.
Eigðu yndislega verslunarmannahelgi💜
– Halldóra og Viðar




Comments