top of page
Search

Ekki láta vetrarfrostið frysta góðu venjurnar!

21 hours ago
2 min read

Við þekkjum þetta öll.


Vekjaraklukkan hringir, það er enn kolniðamyrkur úti og þegar við lítum út um gluggann

sjáum við hrím á bílnum.

Það fyrsta sem kemur upp í hugann er kannski ekki: „Vá, hvað mig langar að fara út!“


Frekar eitthvað á borð við: „Ætli ég geti ekki bara verið aðeins lengur undir sænginni?“


Og það er svo sem ekkert skrýtið.

Þegar dagarnir styttast og hitastigið lækkar verður heimilið aðeins meira freistandi. Hlý teppi, kerti, heitur kaffibolli og sófinn geta hljómað eins og besta hugmynd í heimi.

En það er einmitt á þessum árstíma sem það getur verið sérstaklega gott að halda í hlutina sem láta okkur líða vel.

Við þurfum ekki að fara á fullt til að halda dampi. Við þurfum bara að halda áfram.

Það er auðvelt að hugsa að maður þurfi alltaf að vera jafn duglegur, jafn skipulagður og jafn orkumikill. En lífið virkar ekki alltaf þannig. Sumar vikur höfum við næga orku og komum ótrúlega miklu í verk. Aðrar vikur er nóg að halda utan um það allra mikilvægasta.

Og það er alveg í lagi. Kannski er veturinn einmitt góður tími til að einfalda aðeins.

Í stað þess að setja okkur endalaus markmið getum við ákveðið hvaða litlu hlutir skipta okkur mestu máli. Að fara reglulega út í ferskt loft. Að hitta fólkið okkar. Að hreyfa okkur. Að sofa vel. Að gefa okkur tíma fyrir eitthvað sem gleður okkur. Við þurfum ekki að gera allt.

En við skulum heldur ekki hætta að gera það sem gerir okkur gott, bara af því að það er orðið kalt úti.

Svo má alveg minna sig á að það er oft erfiðara að hugsa um að fara af stað en að fara í raun af stað. Þegar maður er kominn út í daginn, búinn að hitta fólk, hreyfa sig eða gera eitthvað skemmtilegt, er tilfinningin yfirleitt allt önnur.

Auðvitað eigum við líka að njóta þess að hafa það notalegt heima. Veturinn er ekki einhver óvinur sem þarf að berjast við! Það er bara gott að passa að notalegheitin verði ekki til þess að við leggjum allt hitt á hilluna fram á vor. Því það væri nú synd að missa af öllum góðu stundunum sem veturinn hefur líka upp á að bjóða.

Veturinn má alveg hægja aðeins á okkur. En hann þarf ekki að stöðva okkur.

Svo þegar næsti kaldi morgunn rennur upp skulum við muna að við þurfum ekki að bíða eftir sól og sumri til að gera eitthvað gott fyrir okkur sjálf.

Það er fullt af góðum dögum fram undan, líka þeim sem byrja með frosti á rúðunum.


xoxo


 
 
 

Comments


bottom of page