top of page
Search

Jákvæðni er val

Þegar þú vaknar á morgnana hefur þú val um tvennt, að brosa og taka deginum með jákvæðni að vopni eða að dvelja í neikvæðninni og dröslast á fætur úrill og súr. Þetta er val sem fylgir þér í gegnum allan daginn, alla daga. Þú hefur alltaf þetta val!

Það er auðvelt að gleyma sér í súrleikanum

Það er auðvelt að gleyma sér í súrleikanum; að tala ekki um neitt nema hve allt er súrt, að hugsa endalaust um hvað tímarnir séu erfiðir, hvað lífið sé þungt, dimmt og drungalegt. Að velkjast um í eigin súrheitum gerir öll skref erfiðari, þyngri og leiðina upp úr þessu þyngri. Það verður að vana að tala neikvætt um tilveruna, um náungann og svoleiðis heldur snjóboltinn áfram að stækka og stækka þar til maður fattar það ekki sjálfur hvað það er orðið þungt að vera í kringum mann fyrir sjálfa þig og alla hina.


Það er ekki jafn auðvelt að rífa sig upp úr þessum vana. Fyrsta skrefið getur verið bara að finna eitthvað eitt jákvætt við daginn þegar hann er kominn að kvöldi. Það þarf ekki að vera neitt stórkostlegt, maður getur alltaf fundið eitthvað jákvætt. Jákvæði hluturinn getur verið eins einfaldur eins og í dag fékk ég góðan mat, gott kaffi, var í fallegum skóm eða eitthvað lítið og létt. Næsta skrefið getur verið að horfa framan í spegilinn að morgni til og finna eitthvað jákvætt við þig, kannski ertu með falleg augu, vel greitt hár, fallegar tennur eða krúttleg eyru. Svo getur þriðja skrefið verið að tala ekki um neitt neikvætt þann daginn - og það getur verið hressileg áskorun. Þegar þú ætlar að byrja, þagnaðu bara og slepptu því. Svo er fjórða skrefið að hugsa eitthvað jákvætt við allt sem gerist yfir daginn.


Þegar þú venur þig á jákvæðar hugsanir yfir daginn hleypur þú birtu inn í líf þitt, þú verður léttari andlega og lífið verður léttara. Höggin sem við lendum öll í verða viðráðanlegri verkefni og gleðin kemur auðveldara inn í daginn þinn.


Brostu framan í heiminn og þá mun heimurinn brosa við þér :=)

Við þennan lestur, tékkaðu þig af. Taktu stöðuna á sjálfri þér og finndu hvorum hópnum þú tilheyrir eða ertu kannski þarna einhversstaðar á milli. Bros og bjartsýni eru sterkasta vopnið sem þú átt.


Hvað er gott við daginn í dag?


xoxo

 
 
 

Comments


bottom of page