top of page
Search

Má maður ekki bara borða kökuna?

4 hours ago
2 min read

Það er ótrúlegt hvað matur getur stundum orðið flókinn í hausnum á okkur.

Við vitum flest að það er gott að borða fjölbreytt, fá nóg af próteini, grænmeti og öllum þeim næringarefnum sem líkaminn þarf á að halda.

En svo kemur föstudagur. Það er kaka í vinnunni, pítsa í kvöldmatinn eða kannski nammi yfir sjónvarpinu. Og þá læðist stundum að þessi hugsun: „Æ, nú er ég búin að eyðileggja allt.“

En hvernig væri nú að hætta þessari hugsun og losa okkur við þetta leiðindasamviskubit í eitt skipti fyrir öll?

Okkur finnst 80/20-hugsunin frábær nálgun þegar kemur að mataræði. Hún snýst um að byggja upp góðar venjur sem við fylgjum meirihluta tímans, en leyfa okkur líka að njóta þess sem okkur finnst gott án þess að fá samviskubit.

Þú þarft ekki að borða fullkomlega alla daga. Þú þarft ekki að afþakka kökuna í afmælinu eða

sleppa pítsunni á föstudagskvöldinu.

Það sem þú gerir flesta daga skiptir miklu meira máli en einstaka máltíð.

Það er líka allt í lagi að vilja vita aðeins meira um það sem þú borðar. Í dag höfum við aðgang að alls konar sniðugum hjálpartækjum. ChatGPT er til dæmis frábært verkfæri ef þig langar að fá betri yfirsýn yfir mataræðið þitt. Þú getur spurt hvað sé mikið af próteini í morgunmatnum þínum, fengið hugmyndir að næringarríkum máltíðum eða skoðað hvernig þú getur sett saman fjölbreyttara mataræði. Það þarf ekkert endilega að þýða að þú ætlir að telja hverja einustu hitaeiningu eða vigta allt sem fer ofan í þig. Stundum er einfaldlega gott að öðlast meiri þekkingu á því sem við borðum. Og auðvitað er gott að muna að útreikningar frá ChatGPT eru áætlanir og ekki alltaf alveg nákvæmir.

Matur á ekki bara að snúast um tölur, reglur og samviskubit.

Hann á líka að vera góður. Hann á að næra okkur, gefa okkur orku og vera hluti af því að njóta lífsins.

Þannig að ef þig langar í kökusneið um helgina, fáðu þér þá kökusneið.

Og njóttu hennar!

Það er engin ástæða til að eyðileggja góða köku með samviskubiti. 😉

 
 
 

Comments


bottom of page