Sigraðu sjálfa þig
- Kvennastyrksteymið

- 15 hours ago
- 1 min read

Suma daga er púkinn á öxlinni einkar hávær. Hann með lúmskum leiðum telur þér trú að þú nennir ekki á æfingu, að það sé í lagi að mæta ekki, að það sé í lagi að gefast upp. Hann er í banastuði, stútfullur af miður góðum hugmyndum, réttlætingum og ráðleggingum. Púkinn er kraftmikill lítill skratti.
Ekki láta hann sigra. Ef það er púki á annarri öxlinni - þá er engill á hinni. Engillinn hjálpar þér áfram, hann hvíslar að þér að gefast ekki upp. Hann hvíslar að þér því sem þú veist, að þér líði betur á sál og líkama þegar þú mætir.
Á meðan engillinn hvíslar, suðar púkinn. Því miður hefur suðar í honum oft meiri áhrif en við viljum viðurkenna. Við látum eftir honum og setjumst upp í sófa eða höldum áfram því sem við vorum að gera með frábærum réttlætingum eins og „ég hef ekki tíma“, „ég fer bara á morgun“, „æ ég er í svo litlu stuði í dag“ eða jafnvel „ég er svo tæp einhversstaðar“.
Dagarnir sem þú sigrar eru dagarnir sem þú þaggar niður í púkanum og engillinn sigrar. Það eru dagarnar sem telja. Suma daga stendur staðan mjög tæpt og það eru dagarnir sem sigurinn verður extra sætur.
Mættu alltaf þegar þú hefur ákveðið að mæta, settu þér niður mætingarmarkmið og stattu við það. Byrjaðu raunhæft því annars er hætta á að engillinn drukkni í suðinu þegar þreytan nær völdum. Við grípum þig um leið og þú mætir inn um hurðina.
Mættu fyrir þig og sigraðu sjálfa þig!
xoxo




Comments