Það sem við gerum á milli æfinga skiptir líka máli! 💜
Við tölum oft um mikilvægi þess að hreyfa sig, byggja upp styrk og þora að taka aðeins þyngra lóð. En það er eitt sem má alls ekki gleymast í þessu öllu saman – næringin!
Því þó að við leggjum okkur fram á æfingunni þarf líkaminn líka að fá það sem hann þarf til að jafna sig, byggja sig upp og ver
a tilbúinn í næstu æfingu. Og þar koma meðal annars prótein, steinefni og kreatín við sögu.

💪 Prótein – byggingarefni vöðvanna
Þegar við æfum, sérstaklega styrktarþjálfun, reynir á vöðvana. Prótein hjálpar líkamanum að gera við og byggja upp vöðvavef eftir álag. Við fáum prótein meðal annars úr kjöti, fiski, eggjum, mjólkurvörum, baunum og linsum. Það getur verið gott að fá sér próteinríka máltíð eftir æfingu, en það skiptir líka máli að fá nægilegt prótein yfir daginn. Það er mjög sniðugt að nýta til dæmis ChatGPT til að spyrja hve mikið prótein þú ættir að borða á degi hverjum og hvað er mikið prótein í þeim mat sem þú borðar. Útreikningarnir í ChatGPT eru áætlanir en næringarfræðingur geta að sjálfsögðu veitt einstaklingsbundna ráðgjöf.
Og nei, þú þarft ekki endilega að drekka próteinhristing eftir hverja æfingu! Hann getur einfaldlega verið þægileg leið til að bæta við próteini ef erfitt er að ná því úr venjulegum mat.
🥑 Steinefni – litlu hlutirnir sem skipta miklu máli
Steinefni eins og magnesíum, kalíum og kalsíum gegna mikilvægu hlutverki í starfsemi vöðva og taugakerfis. Við fáum þau úr fjölbreyttri fæðu, til dæmis grænmeti, ávöxtum, hnetum, fræjum, mjólkurvörum og heilkorni.
Við svitnum við æfingar og töpum þá meðal annars salti.
Við venjulegar æfingar duga vatn og fjölbreytt mataræði oftast vel, en við þungar æfingar getur stundum verið gagnlegt að huga sérstaklega að vökva og söltum. Steinefni í töfluformi eru hins vegar ekki sjálfkrafa nauðsynleg fyrir alla en getur hjálpað vöðvunum að jafna sig hraðar eftir æfingu og sporna við vöðvaþreytu, strengjum og harðsperrum.
🏋️♀️ Kreatín – hvað er það eiginlega?
Kreatín er efni sem líkaminn framleiðir sjálfur og við fáum líka í litlu magni úr kjöti og fiski.
Það hjálpar vöðvunum að endurnýja orku við stutt og kröftug átök, eins og þegar við lyftum lóðum.
Kreatín er eitt af þeim fæðubótarefnum sem hafa verið hvað mest rannsökuð í tengslum við styrktarþjálfun og getur hjálpað til við að bæta styrk og afköst samhliða reglulegum æfingum. Það þarf ekki að taka kreatín á einhverri sérstakri mínútu fyrir eða eftir æfingu. Regluleg notkun skiptir meira máli en tímasetningin. Ef þú vilt bæta við þig kreatíni mælum við með því að kaupa hreint kreatín og hræra því bara út í vatnsglas á morgnana enda fátt betra en að byrja daginn á hressandi vatnsglasi. Svo má fara í kaffið.
💜 En hvað skiptir mestu máli?
Það er auðvelt að týnast í umræðunni um fæðubótarefni, próteindrykki og allt sem á að hjálpa okkur að ná betri árangri.
En grunnurinn er í raun frekar einfaldur.
Að borða nægilega og fjölbreytta fæðu, fá prótein reglulega yfir daginn, drekka vatn, sofa vel og gefa líkamanum tíma til að jafna sig.
Kolvetnin mega heldur ekki gleymast – þau eru mikilvægur orkugjafi, sérstaklega þegar við æfum af krafti! Margir telja kolvetni af hinu illa en það er alls ekki þannig, við þurfum kolvetni til að fúnkera og ef við drögum um of úr þeim getum við til dæmis fundið fyrir því í hugsun og einbeitingu.
Fæðubótarefni geta verið gagnleg viðbót fyrir suma, en þau koma ekki í stað góðrar næringar.
Við erum auðvitað ekki næringarfræðingar hér í Kvennastyrk og ætlum ekki að þykjast vera það. En okkur finnst mikilvægt að minna á að það er ýmislegt sem við getum gert utan æfingasalarins til að styðja við styrkinn, orkuna og endurheimtina.
Því við verðum ekki bara sterkari á æfingunni
– við byggjum okkur líka upp á milli æfinga. 💜





Comments